Storkuberg veðrast niður vegna rigninga, vinds og jökla. Annars væri yfirborð jarðar þakið fjöllum sem gætu orðið margir kílómetrar á hæð. Svo flytja roföflin það til sjávar eða stöðuvatna. Þar sest bergmylsnan fyrir sem leir, sandur og möl. Og svo þjappast bermylsnan saman og þá myndast fast berg sem nefnist setberg.