Þegar berg hefur bráðnað og orðið að kviku þá gýs eldgos upp í andrúmsloftið. Og bráðin bergkvika kólnar og verður að storkubergi. Veðrun brýtur bergið niður og rof flytur veðraða efnið niður í vötn og/eða sjó þar sem það sest til í lög. Þegar veðraða efnið hefur hlaðist upp í gegn um tíðina myndast setberg vegna mikils þrýstings. Svo ýtist það niður í jörðina, nær bráðnuninni og af völdum hita og þrýstings þá myndast myndbreytt berg. Vegna hreyfingar á jarðskorpuflekunum þá getur myndbreytta bergið farið niður í bráðnun og komið upp sem djúpberg eða storkuberg.